Golfklúbbur Siglufjarðar og Rauðka ehf. hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf við uppbyggingu á nýjum níu holna golfvelli, sem hugmyndir hafa vaknað um að geti mögulega orðið til vestan Hólsár, en núgildandi golfvöllur klúbbsins – einnig níu holur – liggur austan árinnar. Er lagt til að gengið verði þar frá gamalli malarnámu og að úr geti orðið golfvöllur og almennt útivistarsvæði þar sem gert yrði ráð fyrir gönguleiðum, reiðgötum, stangveiði auk þess sem stuðlað yrði að útvíkkun skógræktar á svæðinu, sem þegar er mjög myndarleg.
Teikningar af vellinum eru hér: http://gks.fjallabyggd.is/is/gallery/nyr_golfvollur
Hér fyrir neðan má sjá nýjustu tillöguna sem verið er að vinna með.
Sjá kynningu.